Krukkan …aðeins ofar

Cricket

by alistair on January 11th, 2009

Ég get vottað um það að cricket er miklu erfiðara en það lítur út fyrir að vera og alls ekki leikur fyrir aumingja. Ég er með tognaða öxl og marbletti á baugfingri og löngutöng hægri handar auk þess að verkja í ýmsa áður óþekkta likamshluta eftir þriðju æfingu liðsins í gær.

Það er heldur ekki fyrir vitsmunalega aumingja að skilja reglurnar, ekki skil ég þær.

Tígul drottningin

by alistair on December 9th, 2008

Á lestinni frá Guwahati til Dimapur í síðustu viku stóð ég við opnar lestardyrnar og hlustaði á tónlist í tónhlöðunni á meðan ég horfði á síðdegislandslagið streyma hjá. Ég hallaði mér út um dyrnar og horfði fram á við í hlýjan vindinn. Allt í einu virtist heill spilastokkur streyma út um einhvern lestargluggann fyrir framan mig. Spilunum rigndi yfir mig og þau hurfu meðfram lestinni fyrir aftan mig.

Á meðan ég stóð þarna og velti fyrir mér þessari skemmtilegu, furðulegu sýn, þá leit ég niður og sá að eitt spilanna hafði orðið eftir á efstu tröppu lestarinnar fyrir neðan mig og lá þar á hvolfi. Ég hélt mér fast í handriðið og steig varlega út um dyrnar á lestinni sem rauk enn á fullri ferð inn í sólsetrið. Þegar ég var kominn út og niður í neðri tröppuna teygði ég mig niður eftir spilinu. Ég náði því og snéri því við. Þetta var tígul drottningin.

Aaj Kal Tere Mere Pyar Ke Charche

by alistair on September 21st, 2008

Hjólbörur fullar af glerbrotum

by alistair on September 14th, 2008

Á venjulegum Sunnudegi er ys og þys á “M-Block” markaðnum hérna neðar í götunni og hann troðfullur af fólki í verslunarham.

Ekki í dag. Í dag voru flestar búðir lokaðar meðan fréttamenn töluðu í sjónvarpsmyndavélar úti á miðri götu og búðarstarfsmenn mokuðu glerbrotum búðarglugganna sem splundruðust í sprengingunum í gær upp í hjölbörur.

Mbl.is: “Átján létust í Nýju Delí

Túristi á götum Kolkata

by alistair on August 8th, 2008

Kolkata (sem áður hét Calcutta), er næststærsta borg Indlands með rúmlega 15 milljónum íbúa. Borgin var höfuðborg Bresku Indlandsstjórnarinnar fram til ársins 1911 og er Í dag höfuðborg West Bengal fylkis á austanverðu Indlandi. Um síðustu helgi gekk ég um götur borgarinnar með ferðahandbók, túristahúfu og myndavélina.

Ég henti nokkrum götumyndum inn á nýendurlífgaða flickr síðuna mína. Sjá til vinstri.

Gleðidagur

by alistair on July 21st, 2008

Undanfarið höfum við vespan ekki verið miklir vinir. Eftir að löggan skemmdi hana þegar hún tók hana í geymslu (vespan dó vegna olíuleysis og ég skildi hana eftir á bílastæði í nokkra daga… jájájá, ég hefði mátt vita betur) og það tók mig tvo heila daga í skriffinsku-sikk-sakki út um alla borg að fá hana aftur, þá hef ég ekki nennt að fara með hana í viðgerð og hún situr í fýlu úti í horni á bak við hús.

Vegna þessa hef ég verið að taka taxa í og úr vinnu. Taxabílstjórar Delhi borgar eru misskemmtilegir og margir þeirra hreinlega stórhættulegir. Það er einn langur og mjór miðaldra taxastjóri með stór eyru, þungt andlit og þykkt grátt yfirvaraskegg sem keyrir út frá stöðinni rétt hjá vinnunni. Ég hef tekið hann nokkrum sinnum og hann tautar alltaf og röflar í hvern einasta bíl, trukk, reiðhjól, belju, barn eða betlara sem hann er svo óheppinn að þurfa að keyra framhjá. Stundum stingur hann stóreyrða höfðinu sínu út um gluggann og öskrar eitthvað óskiljanlegt meðan hann lemur lófahælnum ítrekað í flautuna, svo fast að allur Ambassadorinn nötrar á beinunum.

Þó hann hafi í dag mundað flautuna af sinni vanalegu ákefð og tautað ekki minna en aðra daga, þá fannst mér þó heldur léttari tónn í tautinu þegar strætisvagn í sjálfsmorðshugleiðingum smellti sér fyrir framan okkur rétt áður en við renndum upp að fyrstu ljósunum.

Korteri seinna, þegar við vorum loksins komnir út úr götuljósafrumskóginum og stímdum á fullri ferð suðureftir með sveitt hitabeltisloftið streymandi inn um alla glugga, þá heyrði ég, einhvers staðar í fjarska bak við vindinn og umferðarösina, óþekkta indverska gleðitóna sveima um loftið í fíngerðri tenor röddu. Ég leit út um gluggann og inn í autorikshaw við hliðina á okkur til að sjá hvort þar væri syngjandi farþegi, leit síðan við og sá að Stóreyru var að dilla löngutönginni á stýrinu. Ég beygði mig rólega fram á við og sperrti hægra eyrað: Jú, hann söng.

Krukkan snýr aftur! (og á glænýju reiðhjóli)

by alistair on July 20th, 2008

Jæja, eftir alls konar uppfærslurugl er Krukkan loksins komin í loftið á ný. Auðvitað birtast íslensku stafirnir á gömlu póstunum allir í vitleysu en það er kannski bara eitthvað sem maður þarf að sætta sig við þegar maður þráast við að að blogga á örtungumáli.

Mig grunar að það muni líða dágóður tími þar til ég nenni að finna út úr því hvernig á að laga þetta. í millitíðinni hvet ég lesendur til að læra að lesa út úr íslenskunni hér að neðan eins og hún birtist. Gæti verið að það komi að því að við neyðumst til að aðlaga okkur að umheiminum og sætta okkur við það að íslenskan verði skrifuð og skilin svona í framtíðinni. Þá hugsa ég að þau sem þegar eru orðin sleip í að lesa þetta svona muni hafa dýrmætt forskot.

* * *

Annars er það af mér að frétta að ég er kominn með þetta splunkunýja reiðhjól í dökkgrænum gammeldagsstíl og ég er hreinlega grútmontinn af því.

Hjólið er framleitt af BSA sem stendur fyrir Birmingham Small Arms Co. Leifar Bretanna leynast víða hér á Indlandi. Ég efast um að það sé hægt að kaupa BSA reiðhjól nokkurs staðar annars staðar.

Stysta smásaga sögunnar

by alistair on April 16th, 2008

El Dinosaurio
Cuando despertó, el dinosaurio todavía estaba allí.

(Í enskri þýðingu: “When [s]he awoke, the dinosaur was still there.”)

Höfundur: Augusto Monterroso

Ekki bara á ͍slandi

by alistair on January 31st, 2008

Hér var alnetslaust / al-netlaust í gær og allt löturhægt í dag.

“NEW DELHI: Internet users in India struggled with slow surfing speeds and companies tapped redundancy systems to overcome a disruption to international connectivity. The problem was caused due to the breakdown of two undersea cables in the Mediterranean.

“An anchoring ship off Egypt’s Alexandria coast damaged Indian-owned FLAG cable and also SEA-ME-WE on Wednesday morning and urgent repair teams had set sail for the location. An official of Reliance group, which owns FLAG, said the repair will take about 10 days.”

Times of India

Mustt Mustt

by alistair on January 2nd, 2008

Mér sýnist ég ekki hafa boðið upp á eitt einasta dagslag á árinu 2007 þannig að það er kominn tími til að bæta úr því.

Þetta er eitt af mínum uppáhaldslögum þessa dagana. Það heitir Mustt Mustt og er með Pakistanska Qawwali söngvaranum Nusrat Fateh Ali Khan, sem lést árið 1997.

Hlusta:


Hala mp3  Mustt Mustt  -  Spila | Gluggi
price of zithromax buy accutane cheap order cialis from us cheap synthroid cheapest accutane cheapest lasix levitra for sale synthroid no prescription buy cialis generic cheapest levitra prices acomplia online buy cheap propecia order generic cialis cialis cheap price viagra cheap price cialis prices acomplia discount cialis no rx buy synthroid cheap cheap cialis on internet find no rx viagra order viagra from us lasix cheap cheap zithromax tablets soma cheap order cialis overnight delivery buy cialis online order zithromax online propecia online cheap cialis pharmacy cheap generic zithromax no rx cialis cheap cialis in uk purchase levitra cialis discount purchase propecia online discount acomplia cheapest accutane prices cialis bangkok viagra online pharmacy viagra pill best price for cialis cheap cialis no prescription online cialis purchase acomplia online buy zithromax online fda approved viagra compare cialis prices lasix without a prescription pharmacy viagra buying viagra online cheap cialis from uk clomid discount propecia online buy accutane without prescription cheap generic synthroid compare viagra prices cheapest lasix prices synthroid sale cheap cialis in canada viagra medication buy soma cheap viagra order no prescription cialis cheap cialis online synthroid pills soma online order viagra online viagra no online prescription online clomid acomplia without prescription buy cheap levitra online find discount cialis
Alistair Gretarsson Alistair I. Gretarsson Alistair Ingi Gretarsson  Alistair Gretarsson blog Alistair Gretarsson blogg